Lágafellskirkja kynnir með stolti nýjan kór fyrir fólk á aldrinum 14-30 ára. Kórinn verður með það að leiðarljósi að syngja létt og skemmtileg lög. Verkefni kórsins verða að syngja í æskulýðsmessum og einnig halda tónleika ásamt öðrum skemmtilegum viðburðum.
Kórinn æfir á MÁNUDÖGUM kl. 18 – 19.15 í Lágafellskirkju.
Kórstjóri: Þórður Sigurðarson.
Allir velkomnir að koma og prufa. Ef ykkur vantar fleiri upplýsingar er hægt að hafa samband við Lágafellskirkju á facebook eða Instagram