Á undanförnum árum hafa verið í umræðu tvær hugmyndir um byggingu menningarstofnana í miðbæ Mosfellsbæjar; annars vegar bygging menningarhúss og hins vegar bygging kirkju. Á árinu 2006 hófust síðan formlegar viðræður milli sóknarnefndar Lágafellssóknar og Mosfellsbæjar sem urðu m.a. til þess að gerðar voru ítarlegar þarfagreiningar fyrir nýtt menningarhús og kirkju í sameiningu. Í nýju menningarhúsi og kirkju ásamt nýju safnaðarheimili skapast vettvangur fyrir margþætta menningarstarfsemi í þágu samfélagsins, hvort heldur er í menningarhúsi einu og sér eða kirkjunni eða með samnýtingu allra hluta byggingarinnar. Þetta er í samræmi við viljayfirlýsingu Lágafellssóknar og Mosfellsbæjar sem undirrituð var þann 25. júní 2008. Í henni kom jafnframt fram að niðurstöður þarfagreininga skyldu nýttar sem grundvöllur að hugmyndasamkeppni um kirkju og menningarhús í Mosfellsbæ.
Í umsögn dómnefndar um verðlaunatillöguna segir m.a.: “Kirkjuskipið er sérlega áhugavert, þar sem samspil forms og birtu geta skapað töfrandi andrúmsloft, og tenging þess við safnaðarheimili og skrifstofur safnaðarins um ofanlýsta umgjörð undirstrikar hina sérstæðu lögun þess. Byggingin er nánast öll á einni hæð og samanstendur af þremur einingum: kirkju og tónlistarsal, bókasafni og myndlistarsal, sem tengdar eru saman um innri götu.” “Einstakir byggingarhlutar fylgja hæðarlegu svæðisins, fullt tillit er til tekið til Urðanna og formun, hæð og staðsetning kirkjuskipsins í suð-austurhorni lóðarinnar veldur því að byggingin myndar sterkt kennileiti í bænum.” Í ávarpi formanns dómnefndar, Haraldar Sverrissonar, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, segir: “Dómnefnd var sammála um að innsendar tillögur væru áhugaverðar og fallega framsettar og þær fælu í sér fjölda eftirtektarverðra hugmynda um útfærslu á samnýtingarmöguleikum þeirra rýma sem um ræðir. Þá var athyglisvert að sjá hvernig til tókst í mörgum tillögum að virða sérstöðu Urðanna og láta bygginguna falla vel að umhverfi sínu, en um leið að skapa einstaka byggingu sem tekið yrði eftir. Ákveðið var að fjórar tillögur hlytu verðlaun en að auki fengi ein viðurkenninguna „athyglisverð tillaga“.”
Höfundar verðlaunatillagna og „athyglisverðrar tillögu“
1. verðlaun, kr. 4.000.000
Höfundar: Arkitektur.is: Carlton Hlynur Keyser, Gunnlaugur Magnússon, Haraldur Örn Jónsson, Hjörtur Hannesson, Kristján Garðarsson, Magnea Harðardóttir og Michael Blikdal Erichsen
2. verðlaun, kr. 2.500.000
Höfundar: ASK Arkitektar ehf.: Þorsteinn Helgason arkitekt FAÍ, Gunnar Örn Sigurðsson arkitekt FAÍ, Valdimar Harðarsonarkitekt FAÍ, Páll Gunnlaugsson arkitekt FAÍ, Árni Friðriksson arkitekt FAÍ, Sigurlaug Sigurjónsdóttir arkitekt FAÍ
Aðstoð: Helgi Indriðason arkitektanemi og Rafn Hermannsson byggingarfræðingur BFÍ
3. – 4. verðlaun, kr. 750.000
Höfundar: Arkþing ehf: Þórður Þorvaldsson arkitekt FAÍ, Guðrún Ingvarsdóttir arkitekt FAÍ, Helgi Mar Hallgrímsson arkitekt FAÍ
Landslag: Landhönnun Slf. / Hermann Ólafsson landslagsarkitekt FÍLA
3. – 4. verðlaun, kr. 750.000
Höfundar: PK Arkitektar: Pálmar Kristmundsson arkitekt og Fernando de Mendonca arkitekt
Aðstoðarmenn: Helge Garke arkitekt (þrívíddarmyndir) og Kristjana Margrét Sigurðardóttir arkitekt
„Athyglisverð tillaga“
Höfundar: Agnieszka Nowak arkitekt, Anna Leoniak arkitekt og Hildur Gunnarsdóttir arkitekt FAÍ