Foreldramorgnar eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra á öllum aldri. Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin. Á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.
Einu sinni til tvisvar í mánuði er einhverskonar uppákoma, fyrirlestrar eða kynningar og þá yfirleitt eitthvað sem tengist börnum eða foreldrum á einhvern hátt, t.d. mataræði barna, slysavarnir í heimahúsum, sjálfsstyrking kvenna og margt, margt fleira.
Umsjón hafa Andrea Gréta Axelsdóttir, Bogi Benediktsson og Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir!