Þriðji fermingardagurinn rennur upp sunnudaginn 6. apríl. Þann dag verða tvær fermingarathafnir þar sem börn ganga til altaris og gera Jesú Krist að leiðtoga lífs síns. Fyrri fermingarathöfnin er kl.10:30 og fer hún fram í Lágafellskirkju. Síðari athöfnin er í Mosfellskirkju og hefst hún kl. 13:30. Báðir prestar safnaðarins, Sr. Skírnir Garðarsson og sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn þjóna í báðum athöfnunum. Kirkjukór Lágafellskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur Organista. Í báðum athöfnum syngur Jón Magnús Jónsson einsöng og Greta Salóme Stefánsdóttir leikur á fiðlu. Meðhjálpari er Rut G. Magnúsdóttir.
Arndís G. Bernhardsdóttir Linn
1. apríl 2014 13:03