Fimmtudaginn 14. nóvember kemur Hrönn Guðjónsdóttir nuddari til okkar á foreldramorgna og kennir okkur að nudda krílinn. Hrönn hefur áratuga reynslu af ungbarnanuddi og hefur vakið mikla athygli hjá okkur á foreldramorgnum í gegnum tíðina. Gott er að taka með handklæði til að leggja börnin á. Foreldramorgnar hefjast kl. 10 og eru öllum opnir. Sjáumst í Safnaðarheimilinu!

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

12. nóvember 2024 19:05

Deildu með vinum þínum