Foreldramorgnar hefjast aftur fimmtudaginn 17. október kl. 10 – 12 í safnaðarheimilinu, Þverholti 3.

Foreldramorgnar eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra á öllum aldri. Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin. Á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón: Andrea Gréta Axelsdóttir.

Bogi Benediktsson

16. október 2024 07:46

Deildu með vinum þínum