Kl. 13: Vasaljósa sunnó í Lágafellskirkju
Söngur, gleði, fræðsla og leikir. Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.
Í lokin fá krakkarnir bók og límmiða í gjöf frá kirkjunni og hressing í skrúðhúsinu.

Kl. 13: Alþjóða kaffi – nýtt safnaðarstarf!
Opið hús í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3 fyrir fólk af erlendum uppruna.
Mánaðarlegir hittingar fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. Umsjón: sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir og
hægt að hafa samband við hana í n: gudlaughelga@lagafellskirkja.is

Kl. 20: Bleik messa í Lágafellskirkju.
Þrjár kynslóðir af söngkonum: Hera Björk, Hjördís Geirsdóttir og Þórdís Petra leiða söngin. Árni Heiðar Karlsson tónlistarstjóri leikur undir en sungið verður bæði dægurlög í bland við kvöldsálma. Mosfellingurinn Ragnhildur Ösp Sigurðardóttir flytur hugvekju. Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir leiðir stundina. Hressing í skrúðhúsi eftir messu.

Öll hjartanlega velkomin!

Bogi Benediktsson

4. október 2024 09:00

Deildu með vinum þínum