Kl. 13: Bangsa- og dúkku sunnudagaskóli í Lágafellskirkju!
Öll velkomin með bangsa, tuskudýr eða dúkku í heimsókn í kirkjuna þar sem þau verða blessuð.
Í lokin fá krakkarnir bók og límmiða í gjöf frá kirkjunni og hressing í skrúðhúsinu.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Kl. 20: Taize messa í Lágafellskirkju.
Uppskrift af ljúfri kvöldstund þar sem áhersla er lögð á söng og kyrrð fyrir komandi viku.
Sr. Arndís Linn þjónar fyrir altari.
Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng. Tónlist: Árni Heiðar Karlsson organisti og Matthías Stefansson fiðluleikari.
Kaffisopi í skrúðhúsi eftir messu.

Öll hjartanlega velkomin!

Bogi Benediktsson

25. september 2024 09:00

Deildu með vinum þínum