Kl. 11: Innsetningarmessa prestanna í Lágafellskirkju.
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson prófastur Kjalarnesprófastsdæmis setur alla þrjá presta safnaðarins formlega inn í embætti. Sr. Arndís Linn sem sóknarprest Lágafellssóknar, sr. Henning Emil Magnússon og sr. Guðlaug Helgu Guðlaugsdóttur í starf presta við sóknina.
Kirkjukór Lágafellsóknar syngur. Organisti er Árni Heiðar Karlsson.
Messukaffi í safnaðarheimilinu, Þverholti 3 eftir messu.

Kl. 13: Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju. Söngur, gleði, fræðsla og leikir.
Í lokin fá krakkarnir bók og límmiða í gjöf frá kirkjunni og hressing í skrúðhúsinu.
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.

Öll hjartanlega velkomin!

Bogi Benediktsson

19. september 2024 16:29

Deildu með vinum þínum