Heilunarguðsþjónusta undir yfirskriftinni ,,Leyfðu höndum Guðs að snerta við þér“ verður í Lágafellskirkju, föstudaginn 15. september kl. 20:00. Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir þjónar fyrir altari og Vigdís Steinþórsdóttir og hópur heilara aðstoðar við athöfnina. Svava Kristín Ingólfsdóttir söngkona og Árni Heiðar Karlsson organisti sjá um tónlistina. Græðarar verða staðsettir á nokkrum stöðum fyrir altari og munu heila kirkjugesti þaðan. Á meðan á heiluninni stendur verður tónlist og söngur.
Öll hjartanlega velkomin.

Bogi Benediktsson

13. september 2024 09:01

Deildu með vinum þínum