Kyrrðarbæn og biblíuleg íhugun. Kyrrðardagur að morgni í Lágafellskirkju laugardaginn 7. september kl. 9 – 11.

Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í & við kirkjuna og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þeir gjarnan upplýsingar  í síma 5667113 á skrifstofu frá kl. 9 -13 eða á netfangi safnaðarins: lagafellskirkja@lagafellskirkja.is.

Ekkert gjald er tekið fyrir kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.

 

Bogi Benediktsson

7. september 2024 08:59

Deildu með vinum þínum