Í Lágafellssókn er öflugt æskulýðsstarf fyrir unglinga i 8., 9. og 10. bekk veturinn 2024 – 25. Fundirnir eru haldnir á þriðjudögum kl. 20 (húsið opnar kl. 19:30) í safnaðarheimilinu að Þverholti 3, 2. hæð. Á dagskránni verða leikir, flipp og fjör. Stefnt á að fara á æskulýðsmót ÆSKH 15. – 17. nóvember í Vatnaskógi og landsmót ÆSKÞ (Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar) helgina 21. – 23. mars 2025. Staðsetning landsmóts verður auglýst síðar!

Umsjón með æskulýðsstarfinu hefur Bogi æskulýðsfulltrúi, Sigurður Óli & Petrína.

Öll velkomin!