Foreldramorgnar
Fimmtudaga kl. 10 – 12
safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð
Á dagskránni næstkomandi fimmtudag, 25. janúar kl. 10 – 12 verður opið hús. Kaffi, meðlæti og gott spjall.
Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í Safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin, og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.
Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir & Andrea Gréta Axelsdóttir.
Hér er að finna facebook grúppu foreldramorgananna HÉR.
Dagskrá haustsins:
Bogi Benediktsson
24. janúar 2024 09:00