Foreldramorgnar
Fimmtudaga kl. 10 – 12
safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð
Fimmtudaginn 19. október kemur hjúkrunarfræðingur frá heilsugæslunni með fræðslu um matarræði ungra barna. Öll velkomin.
Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin. Og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.
Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir & Andrea Gréta Axelsdóttir.
Hér er að finna facebook grúppu foreldramorgananna HÉR.
Bogi Benediktsson
18. október 2023 09:00