Fyrsta samveran í Gaman saman verður fimmtudaginn 21. september kl. 14 en þá kemur Jón Snædal öldrunarlæknir og heldur fyrirlestur um heilabilun.
Fyrirlesturinn verður í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Heitt á könnunni og meðlæti.

Verið velkomin!

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.

Bogi Benediktsson

20. september 2023 10:32

Deildu með vinum þínum