Kirkjukór Lágafellskirkju auglýsir eftir söngfólki í allar raddir til að taka þátt í fjölbreyttu starfi vetrarins. Karlaraddir eru sérstaklega velkomnar og er reynsla af kórsöng æskileg en þó ekki skilyrði. Æfingar eru á þriðjudagskvöldum í safnaðarheimilinu kl. 19:30-21:30 og svo söngur í messum að jafnaði einusinni í mánuði. Nánari upplýsingar veitir Árni Heiðar Karlsson, organisti, á netfanginu arniheidar@lagafellskirkja.is

Bogi Benediktsson

23. september 2024 09:00

Deildu með vinum þínum