Í fyrstu samverunni af Gaman saman sem verður fimmtudaginn 19. september kl. 14 – 16 kemur Bogi Ágústsson fréttamaður til margra ára í heimsókn og segir sögur. Fyrirlesturinn verður í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Heitt á könnunni og meðlæti.

Verið velkomin!

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.

Bogi Benediktsson

18. september 2024 13:37

Deildu með vinum þínum