Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir var nýlega ráðin framkvæmdastjóri Lágafellssóknar, en hún var valin úr hópi 23 umsækjenda. Sem framkvæmdastjóri mun hún koma til með að bera ábyrgð á rekstri sóknarinnar, mannauðsmálum, umsjón með kirkjugörðum, fasteignum og situr sóknarnefndarfundi. Jóhanna Ýr hóf störf nú í byrjun ágúst.

Jóhanna Ýr er með B.A. í guðfræði, diploma próf í kennslufræðum ásamt því að hafa lokið námi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá EHÍ.

Jóhanna Ýr hefur áður unnið við kennslu í Grunnskólanum í Hveragerði og Sunnulækjarskóla á Selfossi, verkefnastjóri fræðslustarfs við Selfosskirkju, Framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar, skrifstofustjóri hjá Framsókn ásamt því að vera verkefnastjóri og kosningastjóri fyrir Framsókn í Suðurkjördæmi.

Þá er Jóhanna Ýr bæjarfulltrúi Framsóknar í Hveragerði og fyrrum forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs.  Þá situr hún meðal annars í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands og er formaður skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Jóhanna Ýr býr í Hveragerði ásamt sambýlismanni sínum Ara Guðmundssyni og samtals eiga þau sex börn.

Jóhanna Ýr segist vera afar spennt fyrir nýja starfinu, hlakkar til að vinna með samstarfsfólki og sóknarnefnd að þjónustu og frekari uppbyggingu sóknarinnar.

Hægt er að hafa samband við Jóhönnu Ýr á netfanginu: johannayr@lagafellskirkja.is

Við hlökkum til samstarfsins enda er Lágafellssókn sókn í sókn!

Bogi Benediktsson

7. ágúst 2024 10:46

Deildu með vinum þínum