Á þessum laugardegi verður dagskrá í Lágafellskirkju frá 9 – 11.
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um, í og við kirkjuna og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þeir gjarnan upplýsingar í síma 5667113 á skrifstofu frá kl. 9 -13. Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.
Bogi Benediktsson
15. maí 2024 12:44