Síðustu fermingarguðsþjónustur ,,vertíðarinnar“ verða Hvítasunnudag 19. maí kl. 10:30 og 13:30 í Lágafellskirkju. 27 ungmenni fermd í tveim athöfnum. Sr. Arndís Linn og sr. Henning Emil Magnússon þjóna. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organisti er Árni Heiðar Karlsson. Fiðluleikari: Sigrún Harðardóttir. Meðhjálpari: Andrea Gréta Axelsdóttir.
Prestar og starfsfólk Lágafellssóknar óska fermingarbörnum og foreldrum þeirra hjartanlega til hamingju með daginn.
Guð blessi ykkur öll.
Bogi Benediktsson
15. maí 2024 10:25