… í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð
Fimmtudaginn 16. september kl. 10 – 12
Foreldramorgnar eru skemmtilegt tækifæri fyrir kríli, krútt og foreldra þeirra að njóta sín í góðu umhverfi. Foreldramorgnar eru á fimmtudögum kl. 10 – 12 í safnaðarheimilinu okkar, 3. hæð. Þar er nóg pláss fyrir börn að leika og foreldra að spjalla. Einnig verða léttar veitingar í boði.
Á dagskránni verður fræðsla um skyndihjálp barna og við fáum góðan gest, Guðmund Inga til að fræða okkur.
Umsjón: Bryndís Böðvarsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Og hægt er að fylgjast með foreldramorgnum á FACEBOOK undir Foreldramorgnar í Lágafellskirkju, Mosfellsbæ
Bogi Benediktsson
15. september 2021 10:10