Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur inni
Kristin íhugun
Leshópur í tengslum við kristna íhugun
Kristin íhugun

hondBoðið verður upp á leshóp sem lið í kynningu og fræðslu á kristinni íhugun (centering prayer). Lesin verður bókin „Open Mind, Open Heart“ eftir Thomas Keating.

Ekki er nauðsynlegt að eiga bókina eða kunna ensku til að vera með. Gert er ráð fyrir að frjóar og góðar umræður skapist sem allir geta hlustað á og/eða tekið þátt í.

Hugmyndin er að hittast fyrsta laugardag hvers mánaðar. Fyrsta lestrarstundin verður n.k. laugardag, 6. febrúar í Guðríkarkirkju í Grafarholti kl. 10:00 – 12:00. Byrjað verður á 1. og 2. kafla.

Allir sem áhuga hafa á því að kynna sér efni bókarinnar eru hjartanlega velkomnir.

Nánari upplýsingar veitir sr. Ragnheiður Jónsdóttir í síma 869-9882, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, leiðbeinandi í kristinni íhugun (centering prayer) í síma 861-0361, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Um Kristna íhugun - Centering prayer
Kristin íhugun

Íhugun var þáttur í andlegri iðkun og uppbyggingu kristinna manna frá upphafi. Frá því á 17. öld tapaðist hún að nokkru úr vitund fólks en á 20 öld var farið að vinna að því að endurheimta þennan dýrmæta arf.


Ein af þeim aðferðum sem þá litu dagsins ljós er Centering prayer, en hún byggir á gamalli hefð sem lýst er í bókinni: “The Cloud of Unknowing” sem skrifuð er á 14. öld af óþekktum enskum munki.

Centering prayer er nútíma heiti fyrir þá aðferð sem Jesús átti við þegar hann talaði um “að biðjast fyrir” í Fjallræðunni. Hann boðar að: “nær þú biðst fyrir, skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn sem er í leynum...”(Matt.6.6)

Lesa meira
 
,,Gríptu daginn" í kyrrð. Kyrrðarstund á aðventu
Kristin íhugun

mosfklukka„Gríptu daginn“ - í kyrrð Kyrrðarstund á aðventu verður í Mosfellskirkju Laugardagana 5. og 12. desember frá kl. 9:00 til 11:00. Íhugun - kyrrð - útivera í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal.

Lesa meira
 
“Gríptu daginn” - í kyrrð. Kyrrðardagur í Mosfellskirkju
Kristin íhugun
mosfellihugun“Gríptu daginn” -  í kyrrð  Kyrrðardagur í Mosfellskirkju
Íhugun – kyrrð – útivera

Í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal.

Laugardaginn 19. spetember kl. 10-16. Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama.

Lesa meira
 
Kristin íhugun –kynningarnámskeið
Kristin íhugun

bidjandi_hendurÞann 16. september verður boðið upp á námskeið á kristinni íhugun samkvæmt bænahefð sem kallast Centering Prayer. Centering Prayer byggir á aldagamalli hefð sem síðan var endurvakin upp úr 1970 og hefur verið að ná sífellt meiri útbreiðslu um heiminn síðan þá.

 Áhugasamir um nánari upplýsingar geta snúið sér til Ragnheiðar Jónsdóttur, sóknarprests, 5667113 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Lesa meira