Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 69 gestir inni
Kirkjubygging
Bæklingur í tilefni af hugmyndasamkeppni um menningarhús og kirkju
Kirkjubygging
Miðvikudagur, 24 Júní 2009

verdl2Í tilefni af úrslitum í hugmyndasamkeppni um menningarhús og kirkju hefur dómnefndarálitið verið gefið út í bæklingi. Bæklingurinn inniheldur ávarp formanns dómnefndar, greinargerð um samkeppnina og niðurstöður hennar, myndir af tillögunum og umsagnir dómnefndar um þær.  Bæklingurinn liggur frammi á sýningunni  í kjarna og er til afhendingar þeim sem óska sérstaklega eftir því. Bæklingurinn er einnig aðgengilegur hér  á heimasíðunni á pdf-formi, en vegna þess hversu stór hann er, er honum skipt niður í nokkra hluta.

 

Forsíða, ávarp og greinargerð um niðurstöðu.

Um 1. verðlaunatillöguna.

Um 2. verðlaunatillöguna.

Um 3. og 4. verðlaunatillöguna og athyglisverða tillögu.

Um aðrar tillögur.

 

 
Hugmyndasamkeppni um kirkju og menningarhús í Mosfellsbæ - úrslit
Kirkjubygging
Fimmtudagur, 18 Júní 2009

verl3Arkitektastofan arkitektur.is hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um kirkju og menningarhús í miðbæ Mosfellsbæjar sem Mosfellsbær og sóknarnefnd Lágafellssóknar standa fyrir. Önnur verðlaun hlutu ASK arkitektar og þriðja til fjórða sætinu deildu Arkþing og PK arkitektar. Alls bárust 32 tillögur í keppnina. Fyrirkomulag byggingarinnar er með þeim hætti að um er að ræða eitt hús sem hýsir jafnt menningahús á vegum Mosfellsbæjar og kirkju og safnaðarheimili sem á vegum safnaðarins. Hér er því um einstakt og nútímalegt samstarf kirkju og sveitarfélags að ræða.

Lesa meira