Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur inni
Afmæli Lágafellskirkju
Safnaðarbréf og sérrit borið í hús
Afmæli Lágafellskirkju
Miðvikudagur, 26 Ágúst 2009

gomulkirkjaUm þessar mundir, í vikunni fyrir bæjarhátíðina Í túninu heima, er verið að dreifa nýju tölublaði Safnaðarbréfs Lágafellssóknar.

Að þessu sinni er það tvíþætt, annars vegar hefðbundið safnaðarbréf með upplýsingum um starfið framundan og frásagnir af því helsta sem fréttnæmt úr starfi kirkjunnar eftir sumarið.

Hins vegar er 12 síðna sérrit um aðdragandann að byggingu Lágafellskirkju og 120 ára sögu hennar, svo og stiklað á stóru um hljóðfæri kirkjunnar og kirkjusöng gegnum tíðina. Sérrit þetta var tekið saman að tilhlutan sóknarnefndar í tilefni af 120 ára vígsluafmæli kirkjunnar sem var fyrr á þessu ár, en verkið unnu Birgir D. Sveinsson og Sigurður Hreiðar. Bæði blöðin er hægt að nálgast á heimasíðunni. Safnaðarbréfið er að vanda hægt að nálgast undir liðnum Safnaðarbréf hér til vinstri og sérritið er að finna undir Lágafellssókn / kirkjur.

 
Leitað að gömlum myndum úr Lágafellskirkju
Afmæli Lágafellskirkju
Þriðjudagur, 02 Júní 2009

Lagafell_gamaltUnnið er að afmælisriti um Lágafellskirkju, sem átti 120 ára afmæli fyrr á þessu ári. Í því sambandi er leitað að gömlum myndum af kirkjunni og innan úr henni, ekki síst frá því fyrir árið 1956 þegar hún var stækkuð.

Vafalaust hafa slíkar myndir, ef til eru, verið teknar við athafnir í kirkjunni, svo sem skírn, fermingu, brúðkaup eða jarðarför, og gætu því leynst í myndasöfnum viðkomandi fjölskyldna. Það væri umsjármönnum hins fyrirhugaða afmælisrits mikill akkur ef myndir af þessu tagi fyndust og leyfð yrðu afnot af þeim í þessu samhengi.

Vinsamlega hafið samband við: Birgi D. Sveinsson í síma 566 6174, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   eða Sigurð Hreiðar í síma 566 6272, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Afmælisvika Lágafellskirkju í febrúar
Afmæli Lágafellskirkju
Þriðjudagur, 31 Mars 2009

Í tilefni af 120 ára vígsluafmælis Lágafellskirkju var haldin afmælisvika 22. febrúar til 1. mars. Á þessari síðu getur að líta auglýsingar um afmælisdagskrána.  Fjölmargir einstaklingar tóku þátt bæði við undirbúning og í dagskránni sjálfri og gáfu vinnu sína í tilefni afmælisins. Áhersla var lögð á að dagskráin endurspeglaði þá miklu breidd sem er í kirkjustarfi sóknarinnar, næði til sem flestra aldurshópa og væri styrkjandi fyrir samfélagið í gleði og kærleika.

Hægt er að lesa um afmælisvikuna í Safnaðarbréfinu hér á vef Lágafellskirkju.

Myndir af atburðum vikunnar má finna hér á vef Lágafellskirkju.

 
Gospel-gleði í Lágafellsskóla á æskulýðsdaginn 1. mars
Afmæli Lágafellskirkju
Laugardagur, 28 Febrúar 2009
 Smile
Gospelgleði í Lágafellsskóla kl. 20:00 1. mars
 
Í tilefni af æskulýðsdeginum og vígslufmæli Lágafellskirkju hefur söfnuðurinn ákveðið að færa guðsþjónustuna í Lágafellsskóla svo rými sé fyrir alla.  
Fögnum lífinu og gleðjumst saman í miklum söng og bæn til Guðs.
Fjölmennum, taktu með þér vini, ættingja... !!!
 
Kirkjan hefur fengið valinkunna söngvara og.................
Lesa meira
 
Kvöldstund fyrir fermingarbörn og foreldra þeirra
Afmæli Lágafellskirkju
Þriðjudagur, 24 Febrúar 2009
Kvöldstund með kaffihúsastemmningu fyrir fermingabörn og foreldra verður í Safnaðarheimilinu þann 25. og 26. febrúar kl. 19:30 – 21:00.
Samvera með stuttu erindi – spjalli og helgistund.
Halla Jónsdóttir, kennari leiðir kvöldið ásamt prestum safnaðarins og starfsfólki.
25. febrúar        Feðgakvöld (feður og synir)
26. febrúar        Mæðgnakvöld (mæður og dætur)
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 2