|
Barnakórinn sívinsæli byrjar aftur 13. september |
|
Safnaðarstarf -
Barnakór
|
|
Föstudagur, 03 September 2010 |
|
Barnakór verður starfræktur í vetur í samstarfi Lágafellssóknar og Mosfellsbæjar. Æfingar hefjast mánudaginn 13.september 2010. Kóræfingar verða sem hér segir:
2. og 3.bekkur æfir í Lágafellsskóla á mánudögum kl.: 13:15 - 14:05 á sal skólans.
4. og 5. bekkur æfir í Listaskóla Mosfellsbæjar, Háholti 14, á mánudögum kl.: 14:30 - 15:20.
Allir nemendur, sem þykir gaman að syngja, eru hvattir til að skrá sig. Barnakórinn kemur fram í Lágafellskirkju og á fleiri stöðum. Ekkert gjald er tekið fyrir kórstarfið. Námskeiðið er samvinnuverkefni Lágafellskirkju og Listaskóla Mosfellsbæjar.
Umsjón: Berglind Björgúlfsdóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir Skráning: Berglind Björgúlfsdóttir,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
s. 660 7661 |
|
Guðsþjónusta og Sunnudagaskóli 5. september í Lágafellskirkju. |
|
Fimmtudagur, 02 September 2010 |
|
Guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju ,sunnudaginn 5. september kl. 11:00. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar fyrir altari. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir. Sunnudagaskólinn hefst aftur þennan sunnudag og verður kl. 13:00 í Safnaðarheimili Lágafellssóknar. Umsjón með honum hafa Hreiðar Örn og Arnhildur Valgarðsdóttir.
|
|
Safnaðarbréfið er komið út |
|
Miðvikudagur, 01 September 2010 |
|
Safnaðarbréf Lágafellssóknar fyrir haustið 2010 er komið út. Í blaðinu er m.a. fjallað um sjálfboðaliðastarf, ferð æskulýsstarfs Lágafellssóknar til Danmörku og skráningar fermingarbarna. Þá eru viðtöl við nýráðin organista Lágafellssóknar Arnhildi Valgarðsdóttur og Rut G. Magnúsdóttir sem hefur leyst kirkjuvörð og meðhjálpara af síðastliðið ár. Hægt er að skoða blaðið í heild sinni á vef kirkjunnar, til vinstri undir liðnum Safnaðarbréf.
|
|
Prjónasamverur í Safnaðarheimili hefjast aftur 2. september |
|
Miðvikudagur, 01 September 2010 |
|
Síðastliðin vetur hófust Prjónasamverur í Safnaðarheimilinu. Þær hefjast nú aftur fimmtudaginn 2. september kl. 20:00. Umsjón með starfinu hefur Fjóla Haraldsdóttir djákni. Allir eru hjartanlega velkomnir á prjónasamverurnar.
|
|
Kristin íhugun í Safnaðarheimilinu |
|
Miðvikudagur, 01 September 2010 |
Kristin íhugun verður í Safnaðarheimilinu, miðvikudaginn 1. september. Íhugunin byrjar eins og áður kl. 17:30 og eru byrjendur velkomnir kl. 17:00 til að kynna sér grundvallar hugmyndir og áherslur íhugunarinnar. Kristin íhugun , eða Centering Prayer verður svo vikulega á miðvikudögum í allan vetur. Umsjón með kristinni íhugun hefur Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Hægt er að finna nánari upplýsingar um kristna íhugun hér á vef Lágafellskirkju. |
|
Fimmtudagur, 26 Ágúst 2010 |
|
Guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju sunudaginn 29. ágúst kl. 11:00 í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar ,,Í túninu heima". Sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
|
|
Yfirlýsing frá prestum Lágafellssóknar |
|
Miðvikudagur, 25 Ágúst 2010 |
|
Við, prestar Lágafellssóknar erum slegin og miður okkar yfir þeim nýju upplýsingum sem borist hafa kirkju og þjóð varðandi meint kynferðislegt ofbeldi sr. Ólafs Skúlasonar fyrrverandi biskups. Við erum full samkenndar og samúðar með fórnarlömbum kynferðislegs ofbeldis. Við fordæmum kynferðislegt ofbeldi í allri sinni mynd. Það hryggir okkur mjög að kynferðislegt áreiti og ofbeldi skuli hafa átt sér stað innan kirkjunnar. Við hvetjum kirkjuyfirvöld til að taka þannig á málum að trúverðuleiki fórnarlambanna verði aldrei dreginn í efa. Það er bæn okkar og von að þjóðkirkjan endurheimti fullan trúverðugleika og traust.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson |
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 30 |