Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur inni
Fermingar
Skráning fermingarbarna næsta vors fer vel af stað

fermgudSunnudaginn 16. maí var fermingarbörnum sem hyggjast fermast í Lágafellssókn vorið 2011 boðið til guðsþjónustu. Með guðsþjónustunni hófst einnig skráning fermingarbarnanna. Kynning á fermingarfræðslunni og fermingardögum næsta vors hafði áður verið send til allra barna í Lágafellssólkn óháð því hvort þau væru í þjóðkirkjunni eða ekki. Guðsþjónustan var afar vel sótt og var Lágafellskirkja full út úr dyrum.  Lætur nærri að yfir 70% barna í sókninni hafi þegar skráð sig til leiks.

Dreifing á fermingardaga næsta vors var nokkuð jöfn og enn nægt pláss í flestum athöfnum, þegar er þó fullbókað í fermingarathöfnina í Mosfellskirkju. Hægt er að sjá myndir frá athöfninni á myndasíðu safnaðarins og fermingardagana er að finna undir liðnum fermingar hér til vinstri

 
Fermingarathafnir næstkomandi vor 2011

inngangafermingarbarnaDagsetningar fyrir fermingarathafnir næstkomandi vor hafa verið ákveðnar og verða sem hér segir:

27. mars  Lágafellskirkja kl. 10:30

27. mars  Lágafellskirkja kl. 13:30

  3. apríl   Lágafellskirkja kl. 10:30

  3. apríl   Lágafellskirkja kl. 13:30

10. apríl   Lágafellskirkja kl. 10:30

10. apríl   Mosfellskirkja kl. 13:30

17. apríl   Lágafellskirkja kl. 10:30

17. apríl   Lágafellskirkja kl. 13:30

21. apríl   Lágafellskirkja kl. 10:30 (Skírdagur)

21. apríl   Lágafellskirkja kl. 13:30 (Skírdagur)

 

 
Fermingarfræðsla að hefjast að nýju eftir áramót
Fermingafræðslan hefst á ný  12. janúar 2010 og verða tímarnir þeir sömu og fyrir jól:
 
Börn úr Varmárskóla:
8. SMJ  þriðjudaga kl. 15.20
8. O.S.  þriðjudaga kl. 16.10
8. T.H.  miðvikudaga kl.  14.30
8. H.K  fimmtudögum kl. 15.20

Börn úr Lágafellsskóla:
8. I.O.  miðvikudögum  kl. 16.10  
8. F.S  miðvikudögum kl. 15.20
8. H.K.S  fimmtudögum kl.  16.15

 

 
Fermingarundirbúningur 2009 - 2010

fermingarbornFermingarundirbúningur í Mosfellsprestakalli hefst með fjölskyldu guðsþjónustu í Lágafellskirkju þ.6.september kl.11. Kirkjukaffi verður í safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3 að athöfn lokinni.
Þar verður hægt að skrá barnið.

Dagana 9.-10. september eru þau börn sem ætla að fermast á vori komanda beðin mæta í fyrsta tímann í safnaðarheimilið, Þverholti 3. Nánari upplýsingar um fermingarfræðluna og skráningu má sjá hér.

 
Fermingar

Skráning í fermingarfræðslu veturinn 2009 - 2010 hefst í september. Prestar safnaðarins munu koma í báða grunnskóla Lágafellssóknar fyrstu vikuna í september og kynna fræðsluna. Fermingarfræðslan mun svo hefjast í annarri viku september. Nánari upplýsingar verða settar inn hér á næstunni.

Fermingarbörn geta að venju valið dagsetningu á fermingardegi sínum.

Fermingarathafnir í Lágafellssókn vorið 2010 verða sem hér segir:

21. mars  Lágafellskirkja kl: 10:30
21. mars  Lágafellskirkja kl: 13:30

28. mars  Lágafellskirkja kl: 10:30  (Pálmasunnudagur)
28. mars  Lágafellskirkja kl: 13:30

1.   apríl    Lágafellskirkja kl: 10:30 (Skírdagur
1.   apríl    Lágafellskirkja kl: 13:30

11. apríl    Lágafellskirkja kl: 10:30

11. apríl    Lágafellskirkja kl: 10:30

18. apríl   Lágafellskirkja  kl: 10:30
18. apríl   Mosfellskirkja  kl: 13:30