Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur inni
Kærleiksþjónusta
Kærleiksþjónusta - Kærleiksþjónusta


Kærleiksþjónusta er einn af mikilþægustu þáttum í starfi safnaða  og í henni birtist kjarni kristins boðskapar. Hugtakið kærleiksþjónusta er gjarnan notað um það sem kallað er náungakærleikur. Biblían leggur mikla áherslu á að menn sinni náunga sínum sem á einhven hátt þarfnast stuðnings eða  hjálpar.  Kærleiksþjónustan í kirkjunni er félagslegt starf þar sem Jesús Kristur er fyrirmyndin.

Kærleiksþjónusta Lágafellskirkju er í umsjón Fjólu Haraldsdóttur, djákna Mosfellsprestakalls. Hægt er að ná í Fjólu í síma 861-3565 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Heimsóknarþjónusta kirkjunnar

Heimsóknarþjónusta safnaðarins er viðbót við þá þjónustu sem bæjarfélagið lætur í té. Hún er unnin í sjálfboðnu starfi og kallast sjálfboðaliðar hennar heimsóknarvinir.
Þjónustan er fyrir fólk á öllum aldri, í ólíkum aðstæðum. Hún er boð um mannleg samskipti en ekki sérfræðileg meðferð. 
Markmið og tilgangur hennar er:að sýna kærleika í verki, að rjúfa einangrun um skemmri eða lengri tíma,
að viðhalda tengslum á milli sóknarbarna og kirkjunnar með samfélagi og  fyrirbæn

Þegar þjónustan er þegin kemur heimsóknarvinur einu sinni í viku í um það bil klukkustund. Heimsóknarvinur sinnir fyrst og fremst persónulegum tengslum svo sem með spjalli, upplestri bóka og blaða, gönguferðum og annarri dægradvöl.

Fyrirkomulag heimsóknarþjónustunnar:
Umsjónaraðili kannar þarfir viðkomandi heimsóknarþega. Hann er ráðinn af sóknarnefnd og sér um daglegan rekstur verkefnisins. Hann stuðlar að tengslum milli húsráðanda og sjálfboðaliða. Umsjónaraðili heimsóknarþjónustunnar er í góðu samstarfi við heilsugæslu og félagsþjónustu bæjarins.
Heimsóknarvinur gerir samning um tímabundnar heimsóknir. Hann er sá sem tekur að sér heimsóknarþjónustuna og er undirstaða hennar. Hann skapar persónuleg tengsl og myndar vináttu.Heimsóknarþegi er sá sem heimsóknarþjónustunnar nýtur.

Þagnarskylda; Heimsóknarvinir eru bundnir þagnarskyldu um aðstæður þeirra sem þeir heimsækja. Hún er til verndar þeim sem heimsóttir eru.