|
Lágafellssókn -
Lágafellssókn
|
|
Almennar upplýsingar Skrifstofur og Safnaðarheimili Lágafellssóknar eru að Þverholti 3, 3ju hæð í Mosfellsbæ. Símar þar eru: 566 7113 / 566 8028 og fax: 566 7223.
Íbúar sóknarinnar eru nú rétt um 8600. Samkvæmt talningum koma um 24000 manns á ári að starfi og athöfnum kirkjunnar með einum eða öðrum hætti. Það jafngildir því að hvert sóknarbarn taki að meðaltali þátt í athöfnum kirkjunnar í 3,5 skipti yfir árið. Kirkjur Lágafellssóknar eru tvær: Að Lágafelli og að Mosfelli.
Lágafellskirkja sími: 566 6165
Mosfellskirkja sími: 566 6113
Landfræðileg sóknarmörk eru hin sömu og Mosfellsbæjar á flesta vegu, nema hvað Kjalnesingar allt að Kollafjarðarkleifum eiga kirkjusókn til Mosfellsbæjar.
Kirkjugarðar í Mosfellsbæ eru þrír: Tveir að Mosfelli og einn að Lágafelli.
|