|
Kristin íhugun í Safnaðarheimilinu |
|
Miðvikudagur, 01 September 2010 |
Kristin íhugun verður í Safnaðarheimilinu, miðvikudaginn 1. september. Íhugunin byrjar eins og áður kl. 17:30 og eru byrjendur velkomnir kl. 17:00 til að kynna sér grundvallar hugmyndir og áherslur íhugunarinnar. Kristin íhugun , eða Centering Prayer verður svo vikulega á miðvikudögum í allan vetur. Umsjón með kristinni íhugun hefur Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Hægt er að finna nánari upplýsingar um kristna íhugun hér á vef Lágafellskirkju. |
|
Fimmtudagur, 26 Ágúst 2010 |
|
Guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju sunudaginn 29. ágúst kl. 11:00 í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar ,,Í túninu heima". Sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
|
|
Yfirlýsing frá prestum Lágafellssóknar |
|
Miðvikudagur, 25 Ágúst 2010 |
|
Við, prestar Lágafellssóknar erum slegin og miður okkar yfir þeim nýju upplýsingum sem borist hafa kirkju og þjóð varðandi meint kynferðislegt ofbeldi sr. Ólafs Skúlasonar fyrrverandi biskups. Við erum full samkenndar og samúðar með fórnarlömbum kynferðislegs ofbeldis. Við fordæmum kynferðislegt ofbeldi í allri sinni mynd. Það hryggir okkur mjög að kynferðislegt áreiti og ofbeldi skuli hafa átt sér stað innan kirkjunnar. Við hvetjum kirkjuyfirvöld til að taka þannig á málum að trúverðuleiki fórnarlambanna verði aldrei dreginn í efa. Það er bæn okkar og von að þjóðkirkjan endurheimti fullan trúverðugleika og traust.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson |
|
Miðvikudagur, 25 Ágúst 2010 |
|
Prédikun sr. Ragnheiðar Jónsdóttur sókanarprest frá síðasta sunnudegi er nú aðgengileg á vef Lágafellssóknar. Í prédikuninni fjallaði sr. Ragnheiður um málefni líðandi stundar og spurði meðal annars ,, Hvenær verður hlustað á litlar stúlkur, unglingsstúlkur, fullorðnar konur sem hafa orðið fyrir þeirri skelfilegu reynslu að á þeim var brotið?" Prédikun sr. Ragnheiðar er hægt að lesa hér.
|
|
Arnhildur Valgarðsdóttir nýr organisti Lágafellssóknar |
|
Mánudagur, 23 Ágúst 2010 |
|
Arnhildur Valgarðsdóttir hefur hafið störf sem organisti í Lágafellssókn og mun starfa í sókinni næsta árið í fjarveru Jónasar Þórirs. Arnhildur er með BA gráðu í tónlistarfræðum og tveggja ára framhaldsnám í píanóleik. Þá hefur Arnhildur nýverið lokið prófi sem kirkjuorganisti. Lágafellssókn bíður Arnhildi hjartanlega velkomna til starfa.
|
|
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju |
|
Miðvikudagur, 18 Ágúst 2010 |
|
Guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju sunnudaginn 21. ágúst kl. 11:00. Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir og Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Allir velkomnir.
|
|
Kvöldmessa í Lágafellskirkju |
|
Fimmtudagur, 12 Ágúst 2010 |
|
Kvöldmessa verður í Lágafellskirkju , sunnudaginn 15. ágúst kl. 20:00. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Almennur safnaðarsöngur.
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 2 af 31 |