Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 58 gestir inni
Velkomin(n) á heimasíðu Lágafellssóknar
Prjónasamverur - Rússneskt hekl
Þriðjudagur, 02 Febrúar 2010

garnNæsta Prjónasamvera verður næstkomandi fimmtudag, 4. febrúar frá 20:00 - 22:00

Þetta kvöldið leiðbeinir Gróa Karlsdóttir með rússneskt hekl, (barnateppi) Þeir sem vilja prófa, komi með heklunál og band (t.d. truntu-garn). Við hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta og eiga gott samfélag í gleði.Léttar veitingar í boði.

Umsjónarmaður starfsins er Fjóla Haraldsdóttir djákni

 
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju 31.janúar
Föstudagur, 29 Janúar 2010

mosfklukkaGuðsþjónusta verður í Mosfellskirkju sunnudaginn 31 janúar kl. 11:00. Prestur er sr. Skírnir Garðarsson. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir söng í athöfninni undir stjórn organistans Jónasar Þóris. Allir velkomnir

 

Sunnudagaskólinn er á sínum venjulega stað í Lágafellskirkju kl. 13:00. Umsjón með honum hafa að vanda Hreiðar Örn, Jónas Þórir og Arndís Linn

 
Spennandi fræðsludagskrá á Foreldramorgnum
Miðvikudagur, 27 Janúar 2010

foreldramsumarForeldramorgnar eru í Safnaðarheimili Lágafellssóknar alla mánudaga milli 10:00 og 12:00. Á hverri önn er sett saman dagskrá þar sem gert er ráð fyrir um það bil einni fræðslu á mánuði. Á þessari önn verður margt spennandi í boði. 1. febrúar kemur Berglind Björgúlfsdóttir og kynnir fyrir okkur hvernig hægt er að vinna með ungabörn og tónlist. 15. febrúar er röðin komin að Guðlaugu Magnúsdóttur en hún starfar hjá fjölskylduþjónustu þjóðkirkjunnar.

Lesa meira
 
Taize guðsþjónusta í Lágafellskirkju
Föstudagur, 22 Janúar 2010

krossbekkTaize guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju sunnudaginn 24. janúar kl. 20:00. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur og organisti er Jónas Þórir. Sigurður Flosason spilar á saxafón. Allir velkomnir

 
Messa í Lágafellskirkju
Þriðjudagur, 12 Janúar 2010

lagafellsnjorMessa verður í Lágafellskirkju, sunnudaginn 17. janúar kl. 11:00. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari. Altarisganga. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organisti Jónas Þórir. Meðhjálpari er Rut G. Magnúsdóttir.

Sunnudagaskóli á sínum stað kl.13:00. Umsjón Hreiðar Örn og Jónas Þórir.

 
Safnaðarstarf að hefjast aftur eftir áramót
Sunnudagur, 10 Janúar 2010

kkrakkarSafnaðarstarfið í Lágafellssókn er um það bil að hefjast aftur eftir áramót.

Sunnudagaskóli, Prjónasamverur og kristin íhugun hafa þegar hafist en barna og unglingastarf og foreldramorgnar hefjast 11. janúar. Fermingarbörnin mæta einnig í sína fyrstu tíma á nýju ári 12. janúar.

Í Lágafellssókn er bæði fjölbreytt og öflugt starf fyrir alla aldursflokka. Hægt er að kynna sér alla þætti safnaðarstarfsins hér á heimasíðunni.

 
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju 10. janúar
Fimmtudagur, 07 Janúar 2010

fonturGuðsþjónusta verður í Lágafellskirkju sunnudaginn 10. janúar kl. 11:00. Sr. Ragnheiður Jóndóttir þjónar fyrir altari og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prédikar. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organsisti Jónas Þórir. Guðsþjónustunni verður útvarpað í Ríkisútvarpinu. Allir velkomnir

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 10 af 31

Á döfinni



Tenglar