|
Breytingar á dagskrá Foreldramorgna - Mataræði ungbarna |
|
Föstudagur, 12 Febrúar 2010 |
|
Áður auglýst fræðsla frá fjölskylduþjónustu kirkjunnar hefur verið færð til 1. mars. Í staðinn mun Ágúst Guðmundsson koma og kynna næringar og uppskriftabók sem heitir Mataræði ungbarna fyrstu árin, sem og vörur sem tengjast bókinni. Ágúst hefur farið víða á foreldramorgna og kynnt bókina og vörurnar. Þeir sem mæta fá gjöf úr vörulínunni.
|
|
Miðvikudagur, 10 Febrúar 2010 |
|
Sunnudaginn 14. febrúar verður samsöngur með barnakór yngri deilda og fjölskyldum í tengslum við kærleiksviku í Mosfellsbæ. Barnakór yngri deilda beggja barnaskólanna er samastarfsverkefni Listaskóla Mosfellsbæjar og Lágafellssóknar.
Ætlunin er að gleðja sundlaugargesti Lágafellslaugar og syngja í inni lauginni kl.: 17:00 Allir eru velkomnir. |
|
Messa á Biblíudegi í Lágafellskirkju |
|
Föstudagur, 05 Febrúar 2010 |
|
Messa verður í Lágafellskirkju, sunnudaginn 7. febrúar kl. 11:00. Gengið verður til altaris. Prestur er sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Kór Lágafellskirkju syngur og leiðir söng undir stjórn Jónasar Þóris organista. Lesarar verða Guðbjörg Aðalbergsdóttir skólastjóri og Jón Eggert Bragason, aðstoðarskólastjóri Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Meðhjálpari Arndís Linn. Í tilefni af Biblíudeginum verður Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ afhent áletruð Biblía sem gjöf frá Lágafellssókn. Kaffi verður í skrúðhúsinu að athöfninni lokinni.
Sunnudagaskóli kl. 13:00 í Lágafellskirkju. Umsjón hafa Hreiðar Örn, Jónas Þórir og Arndís Linn. |
|
Leshópur í tengslum við kristna íhugun |
|
Kristin íhugun -
Kristin íhugun
|
|
Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 |
|
Boðið verður upp á leshóp sem lið í kynningu og fræðslu á kristinni íhugun (centering prayer). Lesin verður bókin „Open Mind, Open Heart“ eftir Thomas Keating.
Ekki er nauðsynlegt að eiga bókina eða kunna ensku til að vera með. Gert er ráð fyrir að frjóar og góðar umræður skapist sem allir geta hlustað á og/eða tekið þátt í.
Hugmyndin er að hittast fyrsta laugardag hvers mánaðar. Fyrsta lestrarstundin verður n.k. laugardag, 6. febrúar í Guðríkarkirkju í Grafarholti kl. 10:00 – 12:00. Byrjað verður á 1. og 2. kafla.
Allir sem áhuga hafa á því að kynna sér efni bókarinnar eru hjartanlega velkomnir.
Nánari upplýsingar veitir sr. Ragnheiður Jónsdóttir í síma 869-9882, netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, leiðbeinandi í kristinni íhugun (centering prayer) í síma 861-0361, netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Prjónasamverur - Rússneskt hekl |
|
Þriðjudagur, 02 Febrúar 2010 |
|
Næsta Prjónasamvera verður næstkomandi fimmtudag, 4. febrúar frá 20:00 - 22:00
Þetta kvöldið leiðbeinir Gróa Karlsdóttir með rússneskt hekl, (barnateppi) Þeir sem vilja prófa, komi með heklunál og band (t.d. truntu-garn). Við hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta og eiga gott samfélag í gleði.Léttar veitingar í boði.
Umsjónarmaður starfsins er Fjóla Haraldsdóttir djákni |
|
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju 31.janúar |
|
Föstudagur, 29 Janúar 2010 |
|
Guðsþjónusta verður í Mosfellskirkju sunnudaginn 31 janúar kl. 11:00. Prestur er sr. Skírnir Garðarsson. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir söng í athöfninni undir stjórn organistans Jónasar Þóris. Allir velkomnir
Sunnudagaskólinn er á sínum venjulega stað í Lágafellskirkju kl. 13:00. Umsjón með honum hafa að vanda Hreiðar Örn, Jónas Þórir og Arndís Linn |
|
Spennandi fræðsludagskrá á Foreldramorgnum |
|
Miðvikudagur, 27 Janúar 2010 |
|
Foreldramorgnar eru í Safnaðarheimili Lágafellssóknar alla mánudaga milli 10:00 og 12:00. Á hverri önn er sett saman dagskrá þar sem gert er ráð fyrir um það bil einni fræðslu á mánuði. Á þessari önn verður margt spennandi í boði. 1. febrúar kemur Berglind Björgúlfsdóttir og kynnir fyrir okkur hvernig hægt er að vinna með ungabörn og tónlist. 15. febrúar er röðin komin að Guðlaugu Magnúsdóttur en hún starfar hjá fjölskylduþjónustu þjóðkirkjunnar.
|
|
Lesa meira
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 9 af 30 |