Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur inni
Velkomin(n) á heimasíðu Lágafellssóknar
Krílasálmar - Nýjung í Safnaðarstarfi í Mosfellsbæ
Mánudagur, 01 Mars 2010

ungabornNú fer hver að verða síðastur að skrá sig á Krílasálma, námskeið fyrir Foreldra og ungabörn. Þetta eru tónlistarnámskeið fyrir foreldra og ungabörn frá 0 - 1 árs. Á námskeiðinu er foreldrum kennt hvernig nota má söng og tónlist til að auka tengsl við börnin og örva þroska þeirra. Námskeiðið hefst í Lágafellskirkju, fimmtudaginn 4. mars kl. 10:10. Nánari upplýsingar um námskeiðið má sjá hér. Hægt er að skrá sig á námskeiðið á netfanginu  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  eða í Safnaðarheimili Lágafellssóknar í síma 566 7113.

 
Fræðsla og umræður um fjölskylduna og samband para og hjóna
Föstudagur, 26 Febrúar 2010

formorgnarÁ Foreldramorgnum , mánudaginn 1. mars kemur Guðlaug Magnúsdóttir fjölskylduþerapisti  frá Fjölskylduþjónustu Kirkjunnar og ræðir við hópinn um fjölskylduna og parasambandið. Guðlaug hefur mikla reynslu af að hjálpa fólki í samskiptum við sína nánustu. Fjölskylduþjónusta kirkjunnar er þjónusta við hjón, fólk í sambúð, fjölskyldur og einstaklinga, sem finnst þeir vera í einhvers konar vanda í samskiptum við sína nánustu og vilja finna nýjar lausnir. Allir velkomnir á Foreldramorgna milli 10:00 og 12:00 mánudaginn 1. mars.

 
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju 28.febrúar
Miðvikudagur, 24 Febrúar 2010

mosfellihugunGuðsþjónusta verður í Mosfellskirkju, Sunnudaginn 28. febrúar kl. 11:00. Prestur sr. Skírnir Garðarsson. Kammerkór Mosfellsbæjar syngur undir stjórn Símonar Ívarssonar. Organisti Jónas Þórir. Meðhjálpari Arndís Linn.

Sunnudagaskólinn er í Lágafellskirkju kl. 13:00. Umsjón hafa Arndís Linn og Jónas Þórir.

 
Kristin íhugun í Lágafellssókn
Þriðjudagur, 23 Febrúar 2010

kristinihug logoKristin íhugun - Centering Prayer er alla miðvikudaga og verður næst í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3 3. hæð  24. febrúar  kl. 17:30 – 18:30. Byrjendur mæti kl. 17:00.

Stundirnar byrja á íhugun (centering prayer) og enda með biblíulegri íhugun (lectio divina). Allir hjartanlega velkomnir.

Hægt er að fræðast nánar um kristna íhugun hér á vef Lágafellssóknar.

 
Taize guðsþjónusta á konudaginn
Föstudagur, 19 Febrúar 2010

kvoldkirkjaTaize guðsþjónusta verður á konudaginn 21. febrúar í Lágafellskirkju kl. 20:00. Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Jónasar Þóris. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, syngur einsöng.

Sunnudagaskólinn á sínum venjulega stað og tíma kl. 13:00 í Lágafellskirkju.

 
Kynning á Foreldramorgnum
Þriðjudagur, 16 Febrúar 2010

forkynnÁ Foreldramorgnum síðastliðinn mánudag var kynnt bókin Mataræði ungbarna fyrstu árin og vörur sem tengjast bókinni. Það var Ágúst Guðmundsson sem kom og kynnti. Hægt er að sjá myndir frá Foreldramorgnum á myndasíðu Lágafellssóknar hér til vinstri.

 
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli á sunnudaginn
Föstudagur, 12 Febrúar 2010

skreytingloftGuðsþjónusta verður með hefðbundu sniði í Lágafellskirkju sunnudaginn 14. febrúar kl. 11:00. Prestur er sr. Skírnir Garðarsson. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng og organisti er Jónas Þórir. Meðhjálpari Hreiðar Örn Zöega.

Sunnudagskólinn er svo að venju á samastað kl. 13:00. Umsjón með honum hafa Hreiðar Örn og Jónas Þórir.

Hvetjum sóknarbörn til að koma og taka þátt í starfi kirkjunnar.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 30

Á döfinni



Tenglar