Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur inni
Velkomin(n) á heimasíðu Lágafellssóknar
Fermingarathafnir - listi yfir fermingarbörn
Föstudagur, 12 Mars 2010

fermingarborn2Nú styttist óðum í fermingar vorsins. Hér á síðunni er hægt að nálgast lista yfir fermingarbörn vorsins, sjá nánar hlekkinn Fermingar hér til hliðar.

 
Reykjalundarkórinn syngur í guðsþjónustu
Fimmtudagur, 11 Mars 2010

lagafellaltariSunnudaginn 14. mars verður Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00. Prestur er sr. Skírnir Garðarsdóttir. Reykjalundarkórinn syngur undir stjórn Írisar Erlingsdóttur. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir.

 

Sunnudagaskóli á sínum stað í Lágafellskirkju kl. 13:00. Umsjón hafa Hreiðar Örn og Arnhildur.

 

 
Að missa barn
Þriðjudagur, 09 Mars 2010

kirkjugardurLágafellssókn bendir á að Sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur flytur erindi um barnsmissi á samveru Nýrrar dögunar n.k. fimmtudagskvöld, 11. mars. Nánari upplýsingar er að finna á vef Reykjavíkurprófastsdæmis

 
Æskulýðsmessa Lágafellskirkju og Aftureldingar
Þriðjudagur, 09 Mars 2010

aeskMikið fjör var í Lágafellskirkju síðastliðna helgi en þá stóðu Lágafellssókn og Afturelding fyrir Æskulýðsmessu með léttu sniði. Fjöldinn allur af fólki , bæði stóru og smáu, lagði hönd á plóginn. Börn lásu bænir, foreldrar ritningalestra og fjölbreytt tónlist var í umsjón Ásbjargar Jónsdóttur. Myndir úr Æskulýðsmessunni má finna hér. Þá er hægt að lesa hugleiðingu Jóns Pálssonar formanns Aftureldingar hér.

 
Íhugunar og fræðslustund í Safnaðarheimili 10.mars
Þriðjudagur, 09 Mars 2010

kristinihug logoÍhugunar-  og fræðslustund verður í safnaðarheimili Mosfellsprestakalls, Þverholti 3, 3ju hæð,  n.k. miðvikudag 10. mars , kl. 17:30 – 20:00.

Íhugun (Centering Prayer) og fræðsla (DVD  með Thomas Keating).

Kvöldverður – súpa og brauð (500,-).

 
Æskulýðsmessa í Lágafellskirkju kl. 17:00
Fimmtudagur, 04 Mars 2010

minnisvardiLágafellssókn og Afturelding standa fyrir Æskulýðsguðsþónustu sunnudaginn 7. mars kl. 17:00. Messan verður með léttu sniði. Ýmsir aðilar koma að guðsþjónustunni, lesa ritngarorð og bænir auk þess sem fjölbreytt tónlist verður í helgihaldinu. Nánari upplýsignar um guðsþjónustuna er að finna hér.

 

Sunnudagaskóli verður í Lágafellskirkju kl. 13:00. Barnakór Lágafellssóknar og Mosfellsbæjar kemur og syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Umsjón með sunnudagaskóla hafa Hreiðar Örn, Jónas Þórir og Arndís Linn.

 
Prjónasamvera í Safnaðarheimili 4. mars kl. 20:00
Mánudagur, 01 Mars 2010

garnPrjónasamvera verður í Safnaðarheimili Lágafellssóknar 4. mars kl. 20:00 Komum saman og prjónum saman. Allir eru hjartanlega velkomnir. Umsjón hefur Fjóla Haraldsdóttir djákni.

Frábært tækifæri til að koma sama og eiga góða kvöldstund, prjóna saman og læra kannski sitt lítið af hverju af öðrum.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 7 af 30

Á döfinni



Tenglar