Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 69 gestir inni
Velkomin(n) á heimasíðu Lágafellssóknar
Vorboðarnir syngja í guðþjónustu 16. maí kl. 11:00
Þriðjudagur, 11 Maí 2010

lagafellskirkjaAlmenn guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju, sunnudaginn 16. maí kl. 11:00.  Vorboðarnir syngja undir stjórn Páls Helgasonar og kirkjukór Lágafellssóknar annast almennan safnaðarsöng. Organisti er Jónas Þórir og prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Allir velkomnir.

 
Aðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar
Mánudagur, 10 Maí 2010

safnheimAðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar verður haldinn miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00 í safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3. 3 hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir.

 
Kirkjudagur Hestamannafélagsins Harðar
Þriðjudagur, 04 Maí 2010

hordurKirkjudagur Hestamannafélagsins Harðar verður sunnudaginn 9. maí. Hópreið verður til Guðsþjónustu í Mosfellskirkju sem hefst kl. 14:00. Í guðsþjónustunni er einnig ferming. Karlakórinn Stefnir syngur undir stjórn Gunnars Ben.  Judith Þorbergsson leikur á orgel.  Prestur sr. Skírnir Garðarsson.

 
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju
Föstudagur, 30 Apríl 2010

Jesus(1)Guðsþjónusta verður í Lágafellskirkju sunnudaginn, 2. maí kl. 11:00. Prestur sr. Skírnir Garðarsson.  Organisti Jónas Þórir. Í guðsþjónustunni verður barn borið til skírnar.

 
Sértækt sjalaprjón - Prjónasamvera
Þriðjudagur, 27 Apríl 2010

garnPrjónasamvera verður í Safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00 - 22:00. Systurnar Arnleif og Aðalheiður Alfreðsdætur koma í heimsókn og kenna sértækt sjalaprjón. Léttar veitingar í boði. Umsjón hefur Fjóla Haraldsdóttir djákni.

 
Hláturnámskeið á Foreldramorgnum
Föstudagur, 23 Apríl 2010

ungabornÞá er komið að Hláturnámskeiði á Foreldramorgnum. Næstkomandi mánudag 26. apríl kemur Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari og kennir hláturjóga með jákvæðu og styrkjandi ívafi. Eftir allt sem á hefur gengið í þjóðfélaginu síðustu daga veitir sjálfsagt engum af að leggja sig fram um að horfa á jákvæðu hliðarnar. Fyrir hina sem enn vilja kryfja málin til mergjar liggur Rannsóknarskýrslan frammi í Safnaðarheimilinu. Foreldramorgnar hefjast kl. 10:00

 
Skírnarguðsþjónusta í Mosfellskirkju 25.apríl
Miðvikudagur, 21 Apríl 2010

mosfklukkaSkírnarguðsþjónusta verður í Mosfellskirkju, sunnudaginn 25. apríl kl. 11:00. Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir og Organisti Jónas Þórir.  

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 5 af 31

Á döfinni



Tenglar