Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 48 gestir inni
Velkomin(n) á heimasíðu Lágafellssóknar
Guðsþjónusta á Sjómannadag í Lágafellskirkju
Miðvikudagur, 02 Júní 2010
lagfkirkjainniGuðsþjónusta verður í Lágafellskirkju, sunnudaginn 6. júní sem er Sjómannadagur. Guðsþjónusta er kl. 11.00.  Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organisti Guðmundur Ómar Óskarsson. Sr Skírnir Garðarsson predikar og þjónar fyrir altari.
Fjóla Haraldsdóttir djákni og sjálfboðaliðar taka þátt. Kirkjukaffi i skrúðhúsinu að athöfn lokinni. Allir hjartanlega velkomnir.
 
Helgihald í Mosfellskirkju sunnudaginn 30. maí
Fimmtudagur, 27 Maí 2010

mosfklukkaGuðsþjónusta verður í Mosfellskirkju , sunnudaginn 30 maí kl. 11:00. Prestur er sr. Ragnheiður Jónsdóttir, organisti Jónas Þórir. Kór Lágafellskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng.

 
Skráning fermingarbarna næsta vors fer vel af stað
Fermingar - Fermingar
Þriðjudagur, 25 Maí 2010

fermgudSunnudaginn 16. maí var fermingarbörnum sem hyggjast fermast í Lágafellssókn vorið 2011 boðið til guðsþjónustu. Með guðsþjónustunni hófst einnig skráning fermingarbarnanna. Kynning á fermingarfræðslunni og fermingardögum næsta vors hafði áður verið send til allra barna í Lágafellssólkn óháð því hvort þau væru í þjóðkirkjunni eða ekki. Guðsþjónustan var afar vel sótt og var Lágafellskirkja full út úr dyrum.  Lætur nærri að yfir 70% barna í sókninni hafi þegar skráð sig til leiks.

Dreifing á fermingardaga næsta vors var nokkuð jöfn og enn nægt pláss í flestum athöfnum, þegar er þó fullbókað í fermingarathöfnina í Mosfellskirkju. Hægt er að sjá myndir frá athöfninni á myndasíðu safnaðarins og fermingardagana er að finna undir liðnum fermingar hér til vinstri

 
Kristin íhugun í Safnaðarheimilinu
Þriðjudagur, 25 Maí 2010

kristinihug logoAð venju verður Kristin íhugun í Safnaðarheimili Lágafellssóknar miðvikudaginn 26. maí kl. 17:30.  Byrjendur mæta kl. 17:00. Allir velkomir

 
Kvöldguðsþjónusta - Skráning fermingarbarna vorsins 2011
Þriðjudagur, 11 Maí 2010

fermingarborn2Kvöldguðsþjónusta verður í Lágafellskirkju þar sem skráning fermingarbarna fyrir vorið 2011 hefst. Guðsþjónustan verður í Lágafellskirkju og hefst hún kl. 20:00. Til þessarar messu kalla prestar Lágafellssóknar öll tilvonandi fermingarbörn og að lokinni guðsþjónustunni verður tekið við skráningu fermingarhópa næsta veturs. Öll tilvonandi fermingarbörn og forráðamenn þeirra eru hvött til þátttöku.

 
Kyrrðardagur í Mosfellskirkju 15. maí
Þriðjudagur, 11 Maí 2010

mosfellihugunKYRRÐARDAGUR verður í Mosfellskirkju  laugardaginn 15. maí frá Kl. 09:00 til 15:00.
Umsjón með kyrrðardeginum hafa Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, leiðbeinandi í kristinni íhugun - Centering Prayer
og sr. Ragnheiður Jónsdóttir, sóknarprestur. Boðið verður uppá íhugun, kyrrð og útiveru, bæði andlega og líkalega næringu. Upplýsingar og skráning Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.  Sími 869 9882. Allir velkomnir

 
Vorhátíð barnastarfsins í Lágafellssókn
Þriðjudagur, 11 Maí 2010

barnastarf2009Vorhátíð barnastarfsinsn Lágafellssóknar verður haldin  Laugardaginn 15. maí í Lágafellskirkju kl. 11:00. Skemmtileg samverustund í Lágafellskirkju - leikir og létt gaman. Í boði verða léttar veitingar - Allir velkomnir.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 31

Á döfinni



Tenglar