Póstlisti

Viltu fylgjast með því sem er að gerast í Lágafellssókn ? Skráðu þig á póstlista og fáðu fréttabréf kirkjunnar sent reglulega.


Viðburðir


September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Leit

Starfsmenn

Það er/u 1 gestur inni
Velkomin(n) á heimasíðu Lágafellssóknar
Tónleikar í Mosfellskirkju
Fimmtudagur, 13 Nóvember 2008

Kvennakórinn Heklurnar heldur tónleika í Mosfellskirkju á degi íslenskrar tungu sunnudaginn 16. nóvember kl. 16,00.   Á dagskrá eru sönglög við ljóð Halldórs Kiljan Laxness.
Stjórnandi kórsins er Björk Jónsdóttir Meðleikari Aðalheiður Þorsteinsdóttir Kristín Pálsdóttir les stutta kafla úr verkum Halldórs Laxness. Miðasala hjá kórkonum og við innganginn. 

 
Sr. Skírnir Garðarsson valin prestur í Mosfellsprestakalli
Fimmtudagur, 06 Nóvember 2008
Valnefnd Mosfellsprestakalls, Kjalarnessprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum þann 4. nóvember síðastliðinn að leggja til að sr. Skírnir Garðarsson verði ráðinn prestur í Mosfellsprestakalli. Níu   umsækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 1. janúar   2009. Biskup Íslands skipar í embætti prests til fimm ára að  fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu manns úr   prestakallinu ásamt prófasti Kjalarnessprófastsdæmis. Sr.  Skírnir Garðarsson hefur víða leyst af undanfarin ár og meðal annars gegnt prestsþjónustu í Rangárvallaprófastsdæmi.  Hann gegnir nú afleysingaþjónustu í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd.
 
 
Helgihald 9. nóvember - Kristniboðsdagurinn
Fimmtudagur, 06 Nóvember 2008
TAIZE guðsþjónusta kl. 20:00

Unglingar aðstoða við helgihaldið. Sr Jakob Ágúst Hjálmarsson þjónar. Kirkjukór Lágafellskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Jónasar Þóris, organista.


Sunnudagaskólinn í Lágafellskirkju kl. 13:00
 
Fyrsta Safnaðarbréfið
Mánudagur, 03 Nóvember 2008
Fyrsta Safnaðarbréfið sem prentað var í prentsmiðju kom út vorið 1990 í tengslum við 100 ár afmæli Lágafellskirkju.   Safnaðarbréfin fóru fljótlega í þann farveg sem þau eru nú, þ.e. þrjú bréf á ári. Sigurður Hreiðar hefur frá upphafi haft veg og vanda að Safnaðarbréfinu, fyrst í samstarfi við sr. Birgi Ásgeirsson og síðar í samstarfi við sr. Jón Þorsteinsson. Sigurður Hreiðar hefur séð til þess að fyrsta Safnaðarbréfið sem kom út á aldarafmæli Lágafellskirkju er nú aðgengilegt hér á vefnum, í þremur hlutum.

  

Safnaðarbréf 1990 s.1-6             Safnaðarbréf 1990 s. 7 - 10               Safnaðarbréf 1990  s. 11 -16
 
Kirkjugarðar
Kirkjugarðar - Kirkjugarðar

Verið er að tölvusetja legstaðaskrár kirkjugarðanna.

Um leið og þeirri vinnu lýkur verður hún sett hér á vefinn.

Allar upplýsingar um garðana gefur Hreiðar Örn Zoega Stefánsson í síma 566-7113 og í gegnum netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reglur um umgengi í kirkjugörðum Lágafellssóknar
 
1.gr
Kirkjugarður er friðhelgur staður. Þar er bönnuð öll óþarfa hávaði. Umferð vélknuinna farartækja og reiðhjóla er bönnuð í kirkjugarði, nema með sérstöku leyfi hverju sinni.
 
2. gr
Ekkert má vinna í kirkjugörðunum nema í samráði við sóknarnefnd, eða kirkjugarðsvörð fyrir hennar hönd. Gróðurhirðing á leiðum er þó undanskilin.
 
3.gr.
Aðstandendur skulu ganga frá leiðum í samráði við kirkjugarðsvörð. Frágangur skal vera í samræmi við reglur garðsins.
 
4. gr.
Óheimilt er að hlaða upp leiði, heldur skulu þau vera slétt við jörð, þannig að hirða garðsins geti orðið sem auðveldust og heildarsvipur sem samfelldastur. Mælst er til að þau leiði sem hlaðin hafa verið upp fyrir dagsetningu þessara reglna, verði sléttuð.
 
5. gr.
Sóknarnefnd er heimilt að láta slétta og tyrfa í samræmi við reglur þessar þau leiði sem ekki hafa verið lagfærð innan sex mánaða frá jarðarför. Á sama hátt er kirkjugarðsstjórn heimilt að láta lagfæra, slétta og fulltyrfa þau leiði, sem ekki hafa verið hirt í samræmi við reglur þessar í þrjú ár samfleytt.
 
6. gr.
Gróðurreitir á leiðum skulu ekki vera stærri en 40x75 sm á einu leiði og snúa langsum en 75x75 sé einn gróðurreitur á tveim samliggjandi leiðum. Gróðurreitir skulu liggja fram af legsteinum.
 
7. gr.
Ekki má skilja eftir á leiðum eða á götum í görðunum neitt er óprýðir eða veldur óþrifum. Allt slíkt skal láta í ílát sem til þess eru ætluð. Sóknarnefnd er heimilt að láta fjarlægja allt drasl sem óprýðir garðinn að hennar dómi, svo sem úr sér gengnar skreytingar á leiðum, fúna krossa og annað þvíumlíkt.
 
8. gr.
Grafhýsi er óheimilt að gera. Ekki má heldur setja girðingar úr steini, málmi, timbri eða örðu efni um einstök leiði eða grafreiti. Það sem uppi er af þvílíku frá eldri tíma má þó standa, sé því sómasamlega við haldið að mati sóknarnefndar. Annars áskilur sóknarnefnd sér rétt til að láta fjarlægja þessi mannvirki.
 
9. gr.
Ekki má sá eða gróðursetja neins staðar í görðunum eða við þá jurtir sem með sjálfsa´ningu, rótarskoti eða á annan hátt fjölga sér til skaða og valda þannig óeðlilega miklu starfi við hirðu. Tré má ekki gróðursetja á leiði, nema í samráði við kirkjugarðsvörð, sem hefur úrslitavald um hvort heimilt skuli að gróðursetja tré á viðkomandi leiði, hvaða trjátegund og hvar tréð skuli standa í leiðinu. Rísi upp ágreiningur skal kirkjugarðsvörður ráðfæra sig við sóknarnefnd áður en hann kveður upp endanlegan úrskurð. Tré sem þegar eru í garðinum hefur sóknarnefnd leyfi til að snyrta eða fjarlægja svo sem heildaráferð garðsins krefst.
 
10. gr.
Ekki má gróðursetja skrautjurtir eða nnað slíkt á leiði, þannig að þessi gróður skyggi á áletrun á krossum eða legsteinum. Ekki má reisa minnismerki, bautasteia eða annað sem krefst sérstakrar undirstöðu steyptrar, hlaðinnar eða öðru vísi, nema í samráði við sóknarnefnd.
 
11. gr.
Þegar settur er kross eða legsteinn á leiði skal þess ávallt gætt að hann fylgi beinni línu eins og hún er ákveðin í leiðaröð. Í þeim hlutum garðanna, þar sem þessi lína er óljós, skal leita aðstoðar kirkjugarðsvarðar.
 
13. gr.
Reglur þessar eru gerðar með tilliti til reglugerða sem setter hafa verið með haimild í lögum nr. 21 frá árinu 1963 um kirkjugarða.
 
 
Samþ á fundi sóknarnefndar 18.05.1989.

 

 
Fermingar
Fermingar - Fermingar

Skráning í fermingarfræðslu veturinn 2009 - 2010 hefst í september. Prestar safnaðarins munu koma í báða grunnskóla Lágafellssóknar fyrstu vikuna í september og kynna fræðsluna. Fermingarfræðslan mun svo hefjast í annarri viku september. Nánari upplýsingar verða settar inn hér á næstunni.

Fermingarbörn geta að venju valið dagsetningu á fermingardegi sínum.

Fermingarathafnir í Lágafellssókn vorið 2010 verða sem hér segir:

21. mars  Lágafellskirkja kl: 10:30
21. mars  Lágafellskirkja kl: 13:30

28. mars  Lágafellskirkja kl: 10:30  (Pálmasunnudagur)
28. mars  Lágafellskirkja kl: 13:30

1.   apríl    Lágafellskirkja kl: 10:30 (Skírdagur
1.   apríl    Lágafellskirkja kl: 13:30

11. apríl    Lágafellskirkja kl: 10:30

11. apríl    Lágafellskirkja kl: 10:30

18. apríl   Lágafellskirkja  kl: 10:30
18. apríl   Mosfellskirkja  kl: 13:30
 

 
Kynning á kristinni íhugun í Safnaðarheimili Lágafellssóknar
Mánudagur, 03 Nóvember 2008
Miðvikudaginn 5.nóvember kl. 17.30-20.00 verður boðið upp á kynningu á kristinni íhugun í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, Mosfellsbæ, samkvæmt bænahefð sem kallast Centering Prayer.
 
Patricia Johnson, frá kyrrðarsetrinu við Benediktínarklaustrið í Snowmass í Colorado, verður gestur okkar þetta kvöld og mun hún fræða okkur og leiðbeina. Hún hefur 30 ára reynslu í að kenna og iðka Centerin Prayer og sem handleiðari í Snowmass og víðar í heiminum.
 
Þátttaka er ókeypis, en boðið verður upp á súpu og brauð gegn vægu gjaldi.
Skráning um þátttöku í síma 566-7113
 
Centering Prayer byggir á aldagamalli hefð sem síðan var endurvakin upp úr 1970 og hefur verið að ná sífellt meiri útbreiðslu um heiminn síðan þá.
Bænin byggir á orðlausri nálgun við Guð, þar sem biðjandinn tekur ákvörðun um að leitast við að opna hjarta sitt fyrir nærveru Guðs og verkan í lífi sínu. Þjálfunin felst síðan í því að læra að leiða hjá sér truflanir sem sækja á þann tíma sem bænin stendur yfir.
Þetta er eitt einfaldasta form íhugunarbænar sem um getur og geta allir lært það og stundað.
 
Nánari upplýsingar gefur sr. Ragnheiður Jónsdóttir í síma 8699882
 
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Síðasta >>

Síða 29 af 30

Á döfinni



Tenglar